Tuesday, July 3, 2012

Crucifix

Nú í spilun: The Weeknd - Wicked Games

Krossar eru ekki sjaldséðir þessa dagana, og þá sérstaklega ekki í skartgripum. Stelpur bera þá ýmist um hálsinn eða þvert yfir tvo fingur (double-rings), nú og auðvitað um úlnliðinn eða í eyrunum.. þeir eru aaallsstaðar! En eftirfarandi skartgripi hef ég ekki ennþá séð á Íslandi og þrái ég þá alla með tölu VIRKILEGA heitt:
Öfugur kross á hálskeðju
Lítill kross um einn fingur - flottur með öðrum stærri!
Þetta armband vil ég líka sjá í fleiri litum - tööööff!
Svona armbönd sé ég líka vel fyrir mér á strákum, þó það sé ekki nema aðeins eitt stykki með svörtu, grófu bandi!

Ég held það sé samt lítið mál að búa til eitthvað af þessu úr skartgripaleir.. ætli ég láti ekki á það reyna og leyfi ykkur svo að sjá útkomuna :)

-SS



No comments:

Post a Comment