Monday, September 10, 2012

Notaðu heiminn!

Nú í spilun: Ásgeir Trausti - Leyndarmál

Ég rakst á bloggfærslu fyrir löngu síðan með myndum af allskonar skemmtilegum útfærslum af því hvernig hægt er að notfæra sér landakort á annan hátt en þeim er ætlað. Þetta eru til dæmis mjööög sniðugar gjafir fyrir ferðalanginn.. eða bara í eigin heimahúsi - ég held nú að langflestum finnist gaman að ferðast og ættu því að kunna að meta þetta :)



Landakort sem gjafapappír - jafnvel utan um þær gjafir sem maður ætlar að færa fjölskyldu&vinum, þegar maður kemur heim frá útlöndum (:

Í staðinn fyrir upplýstan hnött er hægt að búa til lampaskerm úr landakorti - 2 in 1

Það er bæði hægt að gera þetta bara upp á punt, þar sem þetta er þvílíkt flott.. eða líka búa til lítið skatthol sem inniheldur minningargripi frá landinu sem límt hefur verið framan á hverja skúffu.

Þessi orð eru sönn!

Gefðu gamalli mublu nýtt líf!

Bæði flott og sniðugt - kastaðu teningnum og farðu á þann áfangastað sem snýr upp!

Búðu til umslag úr landakorti af þeim stað sem þú ert á og sendu vinum&vandamönnum.

Ef ég væri með svona heima hjá mér myndi ég eflaust loksins læra staðsetningar landanna í heiminum!

Götur Parísar á bókstöfunum sjálfum.

Cool!

Ferðalagið er áfangastaðurinn!

-SS





Sunday, September 9, 2012

Fléttur og fleira fínt

Nú í spilun: Fun - Some Nights

Nú er ég loksins búin að fjárfesta í nýrri fartölvu svo ég get farið að blogga aftur wohoo! Gamla tölvan var farin að reyna veeerulega á þolinmæði mína! EN hvað sem því líður þá er fléttu-tískan enn þá í fullu fjöri ásamt veigamiklum snúðum og fleiru..

Flétta í kring um hálft höfuðið og endar í snúð.

Þessa mynd sá ég á facebooki Esterar, vinkonu minnar. Hún hafði gert þessar sérstöku fléttur í dóttur sína og mér finnst þetta alveg æðislega flott!
Öfug fastaflétta sem endar svo uppi í snúð.
Hér er ég með eina slíka :)


Flétta í gegnum slegið hár

Fastaflétta til hliðar
Þetta myndi bæði passa hversdagslega og spari!

Flottur hnútur - hentugt ef það vantar teygju :)

Fiskifléttur í skemmtilega careless greiðslu - love it!


Flott hárskart með háum snúð


Rihanna með síða, fallega fléttu.. en mér finnst þessi teygja gera gæfumun!

Einskonar flétta í tveim litum - geðveikt!

Klútur utan um stóran snúð :)

Cooool!


-SS