Thursday, January 3, 2013

Long time no blog!

Nú í spilun: Latch ft. Sam Smith - Disclosure 
(Youtube channel: majesticcasual - ég mæli eindregið með því að subscribe-a)!!

Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur og takk fyrir það liðna! :D :D
Mikið lifandi, skelfingar, ósköp er ég fegin að jóla-stressið&sukkið sé að baki. Eins og þetta er nú yndislegur tími sem maður er svoleiðis umvafinn vinum og vandamönnum, þá held ég að það þakki flestir fyrir að þurfa ekki að borða meira af þessum gómsæta mat í bili.. ég tala nú ekki um hvað ég hlakka til að snúa sólahringnum endanlega við og fara á morgunæfingar aftur! :)

Þessi peysa er nú í eigu Almars vinar míns.

Eitt af mínum áramótaheitum er að vera duglegri að blogga, en fyrsta blogg ársins 2013 verður um síðasta verkefnið sem ég gerði á árinu 2012.. hauskúpu-indíána peysan sem ég loksins druslaðist til að klára!
Og hér er hún =>









Fyrirmyndirnar/Innblásturinn:

Ég sýndi Almari þessa mynd fyrir rúmu ári síðan
og hann varð ólmur í að eiga svona peysu svo
ég ákvað að slá til, enda ekkert lítið flott mynd. :)
Svo sá ég þesa útgáfu af sömu mynd eftir að
ég var byrjuð að mála á peysuna og fannst
fjaðrirnar, margar hverjar, svo fallegar að ég
ákvað að hafa hana líka til hliðsjónar.

Smá mynd af ferlinu.. einungis höfuð-bandið eftir þarna svo ég var
hangandi á netinu að 'gúgla' allskyns litríkar fjaðrir það sem eftir var :)

Og hér er hún aftur alveg tilbúin..
Nærmynd og betri litagæði :)


Ég er sjúk í allt sem við kemur indíánum og þeirra menningu..t.d. hvernig þeir skreyta sig með öllu mögulegu sem þeir finna í náttúrunni.. hvað þeir eru listrænir og litaglaðir þegar kemur að stríðsmálningu og öðru slíku.. og auðvitað hvað þeir eru miklir dýravinir, rétt eins og ég!

Hér eru nokkrar myndir sem hafa gripið augað mitt í gegnum tíðina:


Þessi mynd væri klikkuð á brúnni peysu!
Native American bull skull - einnig efni í mynd á peysu.


Þessi mynstur eru mögnuð!


(Þrykkt í leður)
Það var mjög algengt að hengja fjaðrir á hornin og mála kúpuna - kúl!

Fallegur draumafangari - nýtt húðflúr? Mögulega!


Þessir litir!!!


Límmiðar haha.. en stóra myndin er meiriháttar flott! Þrátt fyrir grimmdina.


Þetta væri ég til í að eiga heima upp á vegg!


Þessir heitu jarðlitir heilla mig rosalega!


Ég væri til í að gera svipaða mynd af indíána-stelpu, en sleppa
sjóræningjamerkinu  (what the?) og gefa henni réttan húðlit!


Tignarlegt og traustvekjandi



Alveg eru þessi mynstur í uppáhaldi!

GEÐVEIK mynd..það verður bara að segjast eins og er!!

Svart/hvítt og litir í bland.

Það er eitthvað við þessa fjöður.. friðsæl en hefur lent í ýmsu?

Þessar fjaðrir minna mig svolítið á fallin laufblöð að hausti til - gæti verið kúl concept.. :)


Vá ég man þegar ég vistaði þessa mynd árið 2007 - á tímum myspace!

Höfuðkúpa af nauti ásamt voldugum erni

Fjaðrir og fleiri fjaðrir!


Svolítið töff mynd!

Þessari teikningu er ég ofboðslega hrifin af!



Þessi er líka mjög draumkennd og falleg :)

Önnur indíána-stelpa

Úff og þessi er í sérstöku eftirlæti - MÖGNUÐ!


-SS



1 comment: